Hótel Flúðir

Sigurður Sigmundsson

Hótel Flúðir

Kaupa Í körfu

Flúðir | Hafnar eru framkvæmdir við stækkun Hótels Flúða. Byggður er ný fundarsalur við matsalinn. "Þetta gengur ljómandi vel," segir Margrét Runólfsdóttir hótelstjóri en hún og maður hennar, Guðmundur Sigurhansson, reka hótelið í samvinnu við Icelandair-hótelin. Hún segir að mun fleira ferðafólk hafi gist í vetur en undanfarin ár, meðal annars erlendir ferðamenn. Þá segir hún að vel líti út með bókanir fyrir sumarið. Á Hótel Flúðum eru 32 tveggja manna herbergi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar