Emma Axelsdóttir, innanhússarkitekt

Emma Axelsdóttir, innanhússarkitekt

Kaupa Í körfu

Það er vandaverk að velja innréttingar og að mörgu að hyggja. Gott er að geta leitað til innanhússarkitekta því þeir luma oft á lausnum sem hinn venjulegi húsbyggjandi sér ekki. Hjón nokkur leituðu í smiðju Emmu Axelsdóttur innanhússarkitekts þegar að því kom að ákveða innréttingar í einbýlishús þeirra. Á meðfylgjandi myndum má sjá afrakstur vinnu hennar. Eik var valin í innréttingar og einnig á gólf í borðkrók, holi, stofu og herbergjum, flísar á gólf koma frá Agli Árnasyni. Smíðaþjónustan, Bygggörðum 5, Seltjarnarnesi, sá um smíði innréttinga og Rafspor ehf. sá um raflögnina. MYNDATEXTI: Gestasnyrtingin. Eik er í hliðum skápsins, en hún er ráðandi í innréttingum hússins. Sandblásið gler í skápahurðum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar