Flugstöð á Bakkaflugvelli

Helgi Bjarnason

Flugstöð á Bakkaflugvelli

Kaupa Í körfu

Smiðir eru nú í óða önn að reisa nýja flugstöð á Bakkaflugvelli í Landeyjum, sem þjónar flugi til og frá Vestmannaeyjum. Smíði hússins hefur verið lengi í bígerð, en nú sér fram á að verkið klárist í lok júní, vel fyrir þjóðhátíð. Einar Jónsson, umsjónarmaður flugvallarins, segir að aðstaðan á vellinum sé orðin slæm, sérstaklega fyrir ferðahópa sem koma á sumrin, og þurfi fólk stundum að bíða í rútunum eftir flugi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar