Í sundi

Rax / Ragnar Axelsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Í sundi

Kaupa Í körfu

UNGIR sem aldnir sækja sundlaugarnar af krafti. Þegar ljósmyndari Morgunblaðsins átti leið framhjá Kópavogslaug í gær stundaði unga fólkið skólasund en þeir sem eldri eru syntu sér til heilsubótar. Sumir sýndu meira að segja nokkur tilþrif í sundíþróttinni eins og sá sem stakk sér glæsilega í laugina. Ekki er ólíklegt að sundferðin hafi hjá mörgum endað í heita pottinum, enda gott að láta líða úr sér í heitu vatni og ræða lífið og tilveruna við aðra lífsins spekinga sem halda til í pottunum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar