Pétur Þórir Gunnarsson

Pétur Þórir Gunnarsson

Kaupa Í körfu

Ársþing Héraðssambands Suður-Þingeyinga var haldið um helgina og voru þar ungir íþróttamenn heiðraðir eins og venja er. Glímumaður árið 2004 var Pétur Þórir Gunnarsson frá ungmennafélaginu Mývetningi, en sundmaður HSÞ var Ásgerður Ólöf Ásgeirsdóttir Völsungi. Þá var íþróttamaður ársins kjörinn Þorsteinn Ingvarsson ungmennafélaginu Einingu í Bárðardal. Anna Sigrún Mikaelsdóttir, sem verið hefur formaður HSÞ í átta ár, lét nú af störfum og við tók Arnór Benónýsson.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar