Mona

Sverrir Vilhelmsson

Mona

Kaupa Í körfu

Mona er nafnið á nýrri verslun sem verður opnuð við Laugaveg í dag. Fimm fræknar konur eiga búðina þar sem þær bjóða vandaðan leðurfatnað sem og vörur hannaðar af nokkrum íslenskum konum. Fjórar þessara framtakssömu kvenna, þær Guðmunda Kristinsdóttir, Sigríður Elfa Sigurðardóttir, Svanheiður Ingimundardóttir og Unnur Ágústsdóttir, eru búnar að vera vinkonur í mjög langan tíma og unnu saman á auglýsingadeild Þjóðviljans fyrir margt löngu og eru allar vanar sölumennsku. En sú fimmta, Gordana Ristic, er ný í hópnum og kemur frá Serbíu, en leðurfatnaðurinn í versluninni er einmitt frá Belgrad og dregur búðin nafn sitt af þeirri fatalínu sem heitir Mona. MYNDATEXTI: Fimm hvítar konur með fimm svörtum gínum í versluninni Monu. Fv.: Unnur, Guðmunda, Gordana, Sigga Elfa og Svanheiður.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar