Stjörnuliðið

Sverrir Vilhelmsson

Stjörnuliðið

Kaupa Í körfu

"VIÐ erum svona að vona að við komumst á verðlaunapall, en þetta verður rosalega erfitt enda bestu lið Evrópu samankomin hérna," segir Sigurbjörg Jódís Ólafsdóttir, fyrirliði hópfimleikaliðs Stjörnunnar, sem tekur þátt í Norðurlandamótinu í hópfimleikum sem fram fer í Laugardalshöll í dag. Stjarnan varð í fjórða sæti á Evrópumótinu sem fram fór í Austurríki í október og stefnan er sett á að bæta sig frá því móti og komast á pall. MYNDATEXTI: Stjörnuliðið í hópfimleikum með fyrirliðann Sigurbjörgu Jódísi Ólafsdóttur fremsta í flokki, tilbúnar í slaginn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar