Gael Garcia Bernal

Brynjar Gauti

Gael Garcia Bernal

Kaupa Í körfu

Glugginn á Panorama-herberginu á áttundu hæð Hótel Nordica minnir að mörgu leyti á bílrúðu, sem er vel við hæfi þegar verið er að ræða vegamynd. Reyndar ferðuðust Ernesto Guevara og Alberto Granado um á mótorhjóli en myndin heitir einmitt Mótorhjóladagbækurnar (Diarios de motocicleta) og er opnunarmynd kvikmyndahátíðarinnar IIFF 2005. Með hlutverk Ernestos, sem gengur ekki enn undir nafninu Che, fer Gael García Bernal. Útsýnið er mikið og kýs Gael að sitja við borðið þannig að hann horfi beint út um gluggann. MYNDATEXTI: Gael García Bernal lærði heilmikið á ferðalagi sínu um Suður-Ameríku líkt og Ernesto Guevara. Hann er heimspekilega þenkjandi og hefur áhugaverða sýn á lífið. Kvikmyndahlutverk velur hann ekki síst eftir því hvort sagan hreyfi við honum og krefjist þess að vera sögð.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar