Hafsteinn Garðarsson

Gunnar Kristjánsson

Hafsteinn Garðarsson

Kaupa Í körfu

ÞAÐ sem af er þessu ári hefur óvenjumikill fiskur farið um höfnina í Grundarfirði. Af þeim þremur mánuðum sem liðnir eru hefur mars verið sá stærsti en í þeim mánuði var landað 2.634 tonnum samanborið við 1.946 tonn í mars 2004. Fyrstu þrjá mánuði ársins lætur nærri að um 2000 tonnum meiri afli hafi komið á land en sömu mánuði í fyrra. "Við erum svo heppin að eiga hér mjög sterk útgerðafélög sem eru undirstaðan fyrir góðu gengi hafnarinnar," segir Hafsteinn Garðarsson hafnarvörður þegar hann er inntur eftir ástæðu þessara meta nú MYNDATEXTI: Höfnin Þennan dag voru þrjú togskip í höfn, f.v. Helgi SH, Þorvarður SH og Kaldbakur EA, Hafsteinn stendur á Litlu- bryggjunni sem brátt víkur fyrir nýrri og verður þá hafnaraðstaðan enn betri og hefur þó þótt mjög góð.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar