RT-félagar í heimsókn í Grímsey

Helga Mattína

RT-félagar í heimsókn í Grímsey

Kaupa Í körfu

Þrátt fyrir hríðarmuggu og vindsperring héldu 18 ungir menn í félagsskapnum RT 5 á Akureyri sínu striki og flugu í óvissuferð út í nyrstu byggð, Grímsey. Hjálmar Hauksson, formaður RT 5, sagði að í þetta sinn hefðu þeir félagar ráðist í veglega ferð þar sem verið væri að kveðja þrjá góða Round Table-félaga. Það var Krían, veitingahúsið hér í Grímsey, sem hafði veg og vanda af móttöku RT 5. Það mátti sjá að einkunnarorðin að hafa það gaman væru í toppi, þar sem þeir félagar nutu grímseysks matar eftir skemmtilega göngu um Grímsey með viðkomu á heimskautsbaug.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar