Goðafoss

Rax / Ragnar Axelsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Goðafoss

Kaupa Í körfu

MARKMIÐ samnings um vaktstöð siglinga er að tryggja öruggar siglingar í íslenskri lögsögu, en ráðherrar samgöngumála og dómsmála undirrituðu samning um verkaskiptingu vegna samningsins í gær. Samningurinn er hluti breyttrar verkaskiptingar milli ráðuneytanna sem ákveðin var um síðustu áramót, en þá fluttust umferðarmál til samgönguráðuneytisins og málefni leitar og björgunar fluttust til dómsmálaráðuneytisins. "Markmið samningsins er m.a. að tryggja öruggar siglingar í íslenskri efnahagslögsögu, öryggi skipa, farþega og áhafna. Til að ná þessu markmiði skal setja á fót vaktstöð siglinga. Samhæfa skal rekstur vaktstöðvarinnar annarri vaktþjónustu á vegum dóms- og kirkjumálaráðuneytisins með það fyrir augum að auka öryggi, stytta viðbragðstíma auk þess að samlegðaráhrif leiði til hagræðingar sem m.a. má nýta til uppbyggingar tæknibúnaðar og endurnýjunar fjarskiptakerfa til að tryggja öryggi sjófarenda," segir í tilkynningu ráðuneytanna af þessu tilefni. Fram kemur að samgönguráðherra fer með yfirstjórn mála er varða vakstöðina en Siglingastofnun fer með framkvæmdina. Hins vegar tekur dómsmálaráðuneytið við daglegum rekstri vaktstöðvarinnar en felur stofnunum og öðrum aðilum framkvæmdina.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar