Ljósmyndasamkeppni Morgunblaðsins og Okkar manna

Ljósmyndasamkeppni Morgunblaðsins og Okkar manna

Kaupa Í körfu

Mýrdalur | "Ég fékk fyrstu myndavélina í fermingargjöf en fór þó ekki að taka myndir reglulega fyrr en fyrir ellefu árum þegar ég var ráðinn fréttaritari Morgunblaðsins. Síðan hefur ekki dottið vika úr og langtímum saman hef ég myndað eitthvað á hverjum degi," segir Jónas Erlendsson, fréttaritari í Fagradal í Mýrdal. Mynd hans, Barist af krafti, var valin besta myndin í ljósmyndasamkeppni Morgunblaðsins og Okkar manna, félags fréttaritaranna. MYNDATEXTI: Sigurvegari Haraldur Sveinsson, stjórnarformaður Árvakurs hf., afhenti Jónasi Erlendssyni verðlaun fyrir sigur í ljósmyndasamkeppni fréttaritara.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar