Dettifoss að vetrarlagi

Birkir Fanndal Haraldsson

Dettifoss að vetrarlagi

Kaupa Í körfu

Nokkur umræða hefur verið um veg að Dettifossi að undanförnu. Ferðaþjónustuaðilar hafa lengi bundið miklar vonir við að þangað verði lagður heilsársvegur, enda mun gert ráð fyrir því á nýrri vegaáætlun.Eftir er þó að ákveða veglínu og er það mál allt í matsferli. Nú er ófært að fossinum nema á snjósleðum og tekur slík ferð 3 til 4 tíma hið minnsta úr Mývatnssveit. Þegar vorleysing hefst svo fyrir alvöru lokast allar leiðir að fossinum í mánuð að minnsta kosti.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar