Sveitarfélög og ferðamálasamtök

Sverrir Vilhelmsson

Sveitarfélög og ferðamálasamtök

Kaupa Í körfu

Sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu undirrita samstarfssamning SVEITARFÉLÖG á höfuðborgarsvæðinu og Ferðamálasamtök höfuðborgarsvæðisins undirrituðu í gær samstarfssamning um að vinna sameiginlega að upplýsingamiðlun, kynningu á viðburðum tengdum ferðaþjónustu og markaðssetningu höfuðborgarsvæðisins. Samningurinn felur í sér að sveitarfélögin leggja til mishá framlög til reksturs verkefnisins, frá 200.000 til 3,5 milljóna króna, til næstu tveggja ára en verkefninu er stýrt frá Höfuðborgarstofu. MYNDATEXTI: Fulltrúar sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu ásamt fulltrúum Ferðamálasamtaka höfuðborgarsvæðisins undirrituðu og kynntu samkomulagið um sameiginlegt ferðaþjónustusvæði í Höfuðborgarstofu í gær.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar