Park Inn

Árni Torfason

Park Inn

Kaupa Í körfu

Radisson-SAS hótel Ísland við Ármúla hefur nú fengið nýtt nafn; Park Inn Ísland. Að sögn Ingibjargar Ólafsdóttur hótelstýru á Park Inn Ísland eiga sömu aðilar Radisson SAS og Park Inn-keðjurnar en sú seinni var opnuð fyrir nokkrum árum og hefur notið mikilla vinsælda, ekki síst á hinum Norðurlöndunum og í Mið-Evrópu. Alls eru á sjöunda tug Park Inn-hótela í Evrópu og mismunandi hvort þau eru þriggja eða fjögurra stjörnu MYNDATEXTI: Ingibjörg Ólafsdóttir, hótelstýra á Park Inn Ísland.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar