Guðbrandur Stígur og Gyrðir Hrafn

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Guðbrandur Stígur og Gyrðir Hrafn

Kaupa Í körfu

BJARNI Fel. er með þá kenningu að það hafi verið uppreisnarandi unglingsins sem gerði mig að Tottenham-aðdáanda á sínum tíma. Móðir mín, sem nú er 81 árs, er mikill stuðningsmaður Arsenal og hafði verið það frá því löngu fyrir mína tíð og reyndi að gera mig að Arsenalmanni með því að gefa mér búninga, handklæði, könnur og fleira í þeim dúr. Ég tók hinsvegar upp á því að halda með erkifjendunum í Tottenham og eftir á að hyggja er þetta mjög sennileg skýring hjá Bjarna," segir Guðbrandur Stígur Ágústsson MYNDATEXTI: Guðbrandur Stígur Ágústsson og sonur hans, Gyrðir Hrafn, sex ára. Strákurinn er upprennandi Tottenham-aðdáandi, telur faðirinn, og kominn með Tottenham-húfu á kollinn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar