Almir Cosic landar úr Júpíter á Fáskrúðsfirði

Albert Kemp

Almir Cosic landar úr Júpíter á Fáskrúðsfirði

Kaupa Í körfu

Fáskrúðsfjörður. Morgunblaðið. | Færeyska skipið Júpíter landaði tvö þúsund tonnum af kolmunna á Fáskrúðsfirði á laugardag. Nýtt andlit bættist í hóp löndunarmanna þennan dag, þegar dýrasti knattspyrnumaður Íslands, Almir Cosic, sem leikur með þriðjudeildarliðinu Leikni á Fáskrúðsfirði, brá sér í löndunargallann og tók til hendinni. Er þetta talin hin mesta búbót fyrir Loðnuvinnsluna, enda hefur verið erfitt að manna löndunargengi eftir að sett var í kjarasamninga að sjómenn ættu ekki að landa bræðslufiski. Segja menn að nú þurfi ekki lengur að spá í hvað Leiknir borgaði fyrir leikmanninn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar