Blakmeistarar

Kristján Kristjánsson

Blakmeistarar

Kaupa Í körfu

Neskaupstaður | Kvennalið Þróttar í Reykjavík í blaki varð bikarmeistari um helgina er liðið lagði Þrótt frá Neskaupstað að velli í úrslitaleik á Akureyri. Áður hafði liðið unnið sigur á Íslandsmótinu. Petrún Jónsdóttir þjálfar og leikur með Þrótti Reykjavík og einnig dóttir hennar Hulda Elma Eysteinsdóttir. Þær mægður hafa lengst af leikið með Þrótti frá Neskaupstað og unnið glæsta sigra með liðinu. Það var móðir Petrúnar og amma Huldu, Elma Guðmundsdóttir, blakfrömuður í Neskaupstað, sem afhenti liði Þróttar bikarinn um helgina. Með þeim á myndinni er Amelía Ýr, dóttir Huldu, en sú stutta fagnar eins árs afmæli í dag.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar