Olga Marta Einarsdóttir með hanann Rúdolf

Atli Vigfússon

Olga Marta Einarsdóttir með hanann Rúdolf

Kaupa Í körfu

Litríkur Laxamýri | Ræktendum íslensku landnámshænsnanna hefur farið fjölgandi undanfarið og vilja margir hafa litskrúðug heimilishænsni á búum sínum. Olga Marta Einarsdóttir á Einarsstöðum í Þingeyjarsveit hefur mikinn áhuga á þessari ræktun og á myndinni má sjá hana með einn skrauthanann sem hún hefur ræktað. Þennan hana sendi hún nýlega ábúendum í Skógahlíð í Reykjahverfi sem voru að byrja með heimilishænsni. Þar mun þessi litskrúðugi fugl, sem nú hefur verið nefndur Rúdolf, eiga að vera ábúendum til ánægju með því að gala á morgnana auk þess að vera til mikillar prýði á staðnum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar