Bryggjuspjall

Kristján Kristjánsson

Bryggjuspjall

Kaupa Í körfu

Dalvíkurbyggð | Það eru oft fjörugar umræður á bryggjum landsins og þangað leggja margir leið sín, daglega jafnvel til að fylgjast með fréttum af aflabrögðum. Stefán Steinsson hafði hjólað niður að höfn og var þar á spjalli við kallana á Eiði EA þegar ljósmyndari var þar á ferð í vikunni. Hermann Daðason útgerðarmaður og hans menn, sonurinn Hermann og Árni Helgason voru að þrífa fiskikörin. Þeir stunda dragnótaveiðar á Grímseyjarsundi, veiða kola og rauðsprettu en aflabrögð hafa verið góð undanfarna daga.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar