Fjaran við Geldingarnes

Þorkell Þorkelsson

Fjaran við Geldingarnes

Kaupa Í körfu

Sumarið hentar best til jarðvegsframkvæmda og slíkar framkvæmdir voru einmitt í fullum gangi þegar ljósmyndari Morgunblaðsins átti leið um Geldinganesið í gær. Stórvirkri gröfu var þar beitt af lagni við fjörusandinn og árangurinn lét ekki á sér standa; stóreflis hrúga myndaðist með ógnarhraða. Arnar Máni og Heiða Rún voru greinilega ánægð með sumarblíðuna.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar