Hænur og snjór

Atli Vigfússon

Hænur og snjór

Kaupa Í körfu

Töluverð snjókoma var um tíma í Þingeyjarsýslu um helgina og fauk í skafla víða. Krap og slabb var á vegum og brá öllum nokkuð í brún þar sem veður hefur verið heldur gott í apríl og menn komnir á sumardekkin. Farfuglarnir voru fremur kuldalegir og mátti sjá þá reyna að koma sér í skjól við hús og læki. Þetta átti líka við um hænsnin sem voru vön að vera úti á daginn en nú brá svo við að þau voru fegin að koma inn úr snjónum, enda mjög kalt á löppunum eftir stuttan göngutúr í leit að einhverju í gogginn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar