Hjólað í vinnuna

Árni Torfason

Hjólað í vinnuna

Kaupa Í körfu

Hjólalest hlykkjaðist um höfuðborgarsvæðið í sólskininu VEL á þriðja hundrað hjólreiðamenn á öllum aldri hjóluðu um höfuðborgarsvæðið í köldu en sólríku veðri í gær, í tilefni af fyrirtækjakeppninni Hjólað í vinnuna sem nú er í gangi. Lagt var af stað frá Spönginni, Mjódd og Smáratorgi, og hittust hóparnir í Nauthólsvík og hjóluðu í lest í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn. MYNDATEXTI: Elín G. Guðmundsdóttir og Lúðvík Gústafsson ásamt börnum sínum, Dagmar Þórhildi og Benedikt Mána, hjóluðu hluta af leiðinni. Þau ætla að vera dugleg að hjóla í sumar. Öll eru þau að sjálfsögðu með hjálm á höfði.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar