Golf

Brynjar Gauti

Golf

Kaupa Í körfu

Golfboltar eru mikilvægur þáttur fyrir þá allra bestu í golfinu en minni spámenn finna ekki alltaf muninn á framleiðslunni. Bandaríkjamaðurinn Phil Mickelson sem nýverið fór að leika með Callaway golfvörum hefur sett sér markmið fyrir næstu misseri og telur að sá bolti sem hann notar geti fleytt honum í metabækurnar. Nýi Callaway boltinn sem Mickelson notar, fjórði besti kylfingur heims, miðað við heimslistann, ber nafnið HX Tour 56. Og er talan 56 það skor sem Mickelson ætlar sér að leika á með nýja boltanum. Aðeins fjórir hafa náð að leika á 59 höggum á bandarísku mótaröðinni í golfi frá upphafi og þar af ein kona. Al Geiberger árið 1977, Chip Beck árið 1991, David Duval á árið 1999 og Annika Sörenstam á Moon Valley-vellinum árið 2001.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar