Valur - ÍBV 10:0

Þorkell Þorkelsson

Valur - ÍBV 10:0

Kaupa Í körfu

VALUR sigraði í gærkvöld Meistarakeppni Knattspyrnusambands Íslands, með stórsigri gegn ÍBV, 10:0. Nína Ósk Kristinsdóttir skoraði fjögur mörk fyrir Íslandsmeistaralið Vals, Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði tvö mörk en þær Dóra Stefánsdóttir, Dóra María Lárusdóttir, Laufey Jóhannsdóttir og Málfríður Sigurðardóttir skoruðu eitt mark hver gegn bikarmeistaraliði ÍBV frá Vestmannaeyjum. Þetta er annar sigur Valsliðsins á leiktíðinni en liðið varð á dögunum deildabikarmeistari. Íslandsmótið hefst á mánudaginn í næstu viku. MYNDATEXTI: Íris Andrésdóttir, fyrirliði Íslandsmeistara Vals, og Laufey Ólafsdóttir fagna sigrinum í Meistarakeppni KSÍ.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar