Gunnar Örn Örlygsson og Davíð Oddsson

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Gunnar Örn Örlygsson og Davíð Oddsson

Kaupa Í körfu

Davíð Oddsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, fagnaði inngöngu Gunnars Örlygssonar í Sjálfstæðisflokkinn. Gunnar Örlygsson lýsti því yfir á þingfundi um ellefuleytið í gærkvöld að hann hefði sagt sig úr þingflokki Frjálslynda flokksins og gengið til liðs við þingflokk sjálfstæðismanna. Skömmu áður hafði þingflokkur sjálfstæðismanna samþykkt samhljóða ósk Gunnars um að ganga til liðs við flokkinn. Gunnar sagðist hafa tekið þessa ákvörðun að vandlega athuguðu máli og að hann fyndi skoðunum sínum bestan farveg í Sjálfstæðisflokknum. MYNDATEXTI: Davíð sagði við Gunnar er sá síðarnefndi gekk inn í þingflokksherbergi sjálfstæðismanna í gærkvöld: "Komdu sæll, gott að fá þig."

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar