trillukarlar

Kristján Kristjánsson

trillukarlar

Kaupa Í körfu

Trillukarlar Akureyri | Það var heldur dauft hljóðið tveimur gömlum trillukörlum sem voru að landa afla í Sandgerðisbót þegar ljósmyndari Morgunblaðsins var þar á ferð í gær. Þeir Grétar Sigurðsson á Von EA og Stefán Baldvinsson á Elvu Dröfn EA voru sammála um að ástandið í firðinum hefði sjaldan verið eins slæmt á þessum árstíma. "Það hefur alltaf verið góð veiði á færin í maí og jafnvel mok," sagði Grétar. Hann kom að landi með um 115 kg af þorski en Stefán gerði heldur betur og kom með um 300 kg af þorski og nokkrar ýsur. MYNDATEXTI: Stefán Baldvinsson kom með 300 kg af þorski úr róðri í gær og nokkrar ýsur.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar