Mark Webber

Jim Smart

Mark Webber

Kaupa Í körfu

ÁSTRALSKI Formúlu 1-ökuþórinn Mark Webber, sem ekur fyrir BMW Williams keppnisliðið, afhenti í gær Barnaspítala Hringsins þrjá formúlu rafmagns-kappakstursbíla að gjöf í Hagkaupum í Smáralind. Bílarnir eru smækkaðar og töluvert aflminni útgáfur af keppnisbifreið hans sem börnin á barnaspítalanum geta þeyst um á. Webber kom hingað til lands á sunnudag á vegum Baugs Group sem er einn bakhjarla BMW Williams-liðsins. Webber sat fyrir svörum blaðamanna en einnig var til sýnis Formúlu 1-keppnisbifreið hans og gátu gestir og gangandi fengið eiginhandaráritun hans. MYNDATEXTI:Ástralski ökuþórinn veitti aðdáendum eiginhandaráritanir, þ.á m. þessum unga dreng en hann áritaði Formúlu 1-keppnisbúninginn hans.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar