Hnípin páskalilja í vorhreti

Hnípin páskalilja í vorhreti

Kaupa Í körfu

Egilsstaðir | Héraðsbúar eru margir hverjir farnir að skammast ótæpilega út í ríkjandi veðráttu og þykir nóg komið af snjó og hagléljum í áliðnum maímánuði. Páskaliljur og annar vorgróður reynir þó sitt besta til að halda uppi merkjum árstíðarinnar, en þó ekki laust við að liljurnar drúpi höfði í þeirri kaldranalegu baráttu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar