Hjördís Árnadóttir sýning

Helgi Bjarnason

Hjördís Árnadóttir sýning

Kaupa Í körfu

Reykjanesbær | Nemendur á námskeiði Myndlistarskóla Reykjaness stöfluðu stólum og borðum á mitt gólf salarkynna skólans í Svarta pakkhúsinu og hengdu sloppa og verkfæri á. Þetta verk, gerningur, varð til vegna þess að rýma þurfti til fyrir sýningu á afrakstri námskeiðs. Vakti gerningur þessi síst minni athygli en málverkin sem hengd voru á veggina. MYNDATEXTI: Sýning Gerningurinn sem byggðist á tiltekt nemendanna vakti einna mestu athyglina á útskriftarsýningu Myndlistarskóla Reykjaness.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar