Draga björg í bú

Theodór Kr. Þórðarson

Draga björg í bú

Kaupa Í körfu

Borgarnes | Þrír ungir og röskir Borgnesingar voru að draga björg í bú í Höfðaholtinu í Borgarnesi góðviðrisdag einn í vikunni. Sigurður Aron Þorsteinsson, Hlynur Sævar Jónsson og Þorgeir Þorsteinsson hittu nágranna sem hafði verið á veiðum með sjóstöng og fengið leyfi hans til að hirða eins marga þorska og þeir gátu borið. Drengirnir nánast fylltu þvottabalann og roguðust með aflann heim. Voru þeir nokkuð hróðugir með framtakið.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar