Saman hópurinn í Húsdýragarðinum

Eyþór Árnason

Saman hópurinn í Húsdýragarðinum

Kaupa Í körfu

Sumar er oft sá tími sem ungt fólk byrjar að nota tóbak, áfengi eða vímuefni," sagði Hildur Hafstein, fulltrúi Lýðheilsustöðvar í SAMAN-hópnum, á blaðamannafundi hópsins á dögunum. SAMAN-hópurinn hefur starfað í nokkur ár en í honum sitja fulltrúar frá 22 stofnunum, sveitarfélögum og frjálsum félagasamtökum. Hildur lagði áherslu á að viðhalda þeim góða árangri sem hefur náðst í forvarnarstarfi. Nú þurfi að leggja áherslu á aldurshópinn frá 16-18 ára enda breytist margt hjá börnunum þegar þau fara í framhaldsskóla. MYNDATEXTI: Ólafur Ragnar Grímsson afhendir Sigrúnu Aðalbjarnadóttur viðurkenningu fyrir góð rannsóknarstörf. Einnig fengu viðurkenningu Inga Dóra Sigfúsdóttir, Þórólfur Þórlindsson og Þóroddur Bjarnason.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar