Aðdáendur Snoop Dogg

Jim Smart

Aðdáendur Snoop Dogg

Kaupa Í körfu

Vænar raðir æstra aðdáenda Snoop Dogg mynduðust eldsnemma í gærmorgun fyrir utan sölustaði miða á tónleika rapparans í Egilshöll 17. júlí nk. Miðasalan hófst kl. 10 um morguninn og fór hún að sögn skipuleggjenda hjá Event ehf. mjög kröftuglega af stað. Áætlar Ísleifur Þórhallsson að nú þegar sé búið að selja yfir þrjú þúsund miða. Því sé nærri því helmingur allra miða farinn vegna þess að í boði verða einungis sjö þúsund miðar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar