Leikskólinn Sólhlíð

Jim Smart

Leikskólinn Sólhlíð

Kaupa Í körfu

Krakkarnir á leikskólanum Sólhlíð héldu sumarhátíð í vikunni og fóru í skrúðgöngu um Eskihlíð og Reykjahlíð. Á eftir var haldið lítið karnival á leikskólalóðinni þar sem foreldrum, systkinum og öðrum ættingjum var boðið að koma og fylgjast með og gæða sér á pylsum. Eins og sjá má var hópurinn glæsilegur að sjá er hann þrammaði um Hlíðarnar í góða veðrinu í gær með trommur og hatta og naut lífsins.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar