Nýr gosbrunnur vígður í Reykjavíkurtjörn

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Nýr gosbrunnur vígður í Reykjavíkurtjörn

Kaupa Í körfu

Miðborgin | Kveikt var formlega á nýja gosbrunninum í Tjörninni í gær. Gamli gosbrunnurinn, sem þáverandi sendiherra Bandaríkjanna gaf borginni 1980, var búinn að skila sínu og var ákveðið að kaupa nýjan í hans stað. Nýi gosbrunnurinn er nokkru minni en sá gamli en sá hátturinn var hafður á svo oftar væri hægt að hafa kveikt á honum. Sá gamli var svo öflugur að þegar hvessti úðaði hann hressilega yfir göngugesti í Hljómskálagarðinum. Írena Björk Ómarsdóttir, nemi í leikskólanum Tjarnarborg, setti gosbrunninn í gang með farsíma. Með henni er Katrín Jakobsdóttir, borgarfulltrúi

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar