Hafnarfjarðarleikhúsið

Jim Smart

Hafnarfjarðarleikhúsið

Kaupa Í körfu

TVEIR leikþættir, Hreindýr og Ísbjörn óskast, verða frumsýndir í Listaklúbbi Hafnarfjarðarleikhússins í kvöld. Að sögn höfundarins, Sigurbjargar Þrastardóttur, eru hér á ferðinni tveir stuttir þættir, sem þó eru þematískt tengdir. "Þeir fjalla báðir um menn og skepnur, eða skepnuskap manna, eða dýrslegar hvatir þeirra, eða mennsku dýranna - á alla vegu og með mjög skemmtilegum hætti, held ég að sé óhætt að segja, því þau gera þetta mjög skemmtilega," segir Sigurbjörg og vísar þar til hópsins sem kemur að uppsetningu leikþáttanna í Hafnarfjarðarleikhúsinu undir forystu Hilmars Jónssonar. MYNDATEXTI: Jón Páll Eyjólfsson og Elma Lísa Gísladóttir leika ísbjörninn og Söndru.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar