Haraldur Sveinsson 80 ára afmæli í Súlnasal Hótel Sögu

Þorvaldur Örn Kristmundsson

Haraldur Sveinsson 80 ára afmæli í Súlnasal Hótel Sögu

Kaupa Í körfu

MARGT manna samfagnaði Haraldi Sveinssyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra og stjórnarformanni Árvakurs, útgáfufélags Morgunblaðsins, er hann hélt upp á áttræðisafmæli sitt í Súlnasal Hótels Sögu í gær. Styrmir Gunnarsson, ritstjóri Morgunblaðsins, og Haraldur Sumarliðason, forseti Rótarýklúbbs Reykjavíkur, héldu ræður og Ásdís Haraldsdóttir söng einsöng við undirleik Zsuzsönnu Budai. Veislustjóri var Sveinn Haraldsson. Á myndinni, sem tekin var í afmælisveislunni, eru f.v.: Agnes Jóhannsdóttir, eiginkona Haraldar, Inga Jóna Þórðardóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi, Geir H. Haarde fjármálaráðherra og Haraldur Sveinsson.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar