Öryrkinn Ósigrandi

Jim Smart

Öryrkinn Ósigrandi

Kaupa Í körfu

NÝ-UNG, ungliðahreyfing Sjálfsbjargar, hélt tónleika í gærkveldi til styrktar verkefninu "Öryrkinn ósigrandi". Hugmyndin með verkefninu er að bæta ímynd öryrkja og sýna að allt sé hægt, hvort sem fólk er í hjólastól eða ekki, allt sem þurfi sé viljinn. "Það var fanta góð stemmning á tónleikunum," sagði Leifur Leifsson ábyrgðarmaður verkefnisins. Á myndinni tekur söngvari hljómsveitarinnar STF, sem þekktur er undir nafninu Kaktuz, hraustlega á til að koma skilaboðum "Öryrkjans ósigrandi" á framfæri.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar