Sörlafélagar

Sörlafélagar

Kaupa Í körfu

Bláskógabyggð | "Þetta er lífið. Ég læt mig dreyma allan veturinn um að komast í að minnsta kosti eitt svona hestaferðalag á sumri," segir Margrét Friðriksdóttir, formaður ferðanefndar hestamannafélagsins Sörla í Hafnarfirði, í samtali í gær. Hún var þá að ljúka nærri fimm daga hestaferð um uppsveitir Árnessýslu með tæplega 60 manna hópi Sörlafélaga en gaf sér tíma til að stíga af baki til að ræða við blaðamann í farsímann. MYNDATEXTI: Eftir lúpínugötu Sörlafélagar riðu eftir lúpínugötunum þegar þeir komu niður af Haukadalsheiði og í gegnum Haukadalsskóg. Áfram héldu þeir framhjá Geysi og yfir Tungufljót.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar