Háskóli Unga Fólksins

Sverrir Vilhelmsson

Háskóli Unga Fólksins

Kaupa Í körfu

Háskólasvæðið hefur iðað af lífi undanfarna daga því þar eru nú um 150 krakkar á aldrinum tólf til sextán ára í Háskóla unga fólksins sem nú fer fram annað árið í röð. Fjögurra daga tilraun var gerð með skólann í fyrra sem þótti takast mjög vel og því hefur verið afráðið að framhald verði á. Að þessu sinni stendur Háskóli unga fólksins yfir í tvær vikur, frá 13.-24. júní, en útskriftarhátíð verður haldin í Háskólabíói á laugardaginn. MYNDATEXTI: Róbert Jack fræðir unga heimspekinema um samræðuaðferðir Sókratesar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar