Fólkí fréttum

Alfons Finnsson

Fólkí fréttum

Kaupa Í körfu

Ljósmyndasýningin Fólk í fréttum hefur verið sett upp á Hótel Ólafsvík. Hún er liður í dagskrá Færeyskra daga sem haldnir eru í Ólafsvík um helgina. Í tilefni opnunarinnar býður Hótel Ólafsvík upp á kaffihlaðborð á laugardag og sunnudag. Á ljósmyndasýningunni eru verðlaunamyndir eftir fréttaritara Morgunblaðsins á landsbyggðinni, meðal annars tvær fréttamyndir sem Alfons Finnsson í Ólafsvík er höfundur að. Sýningin er sett upp á nokkrum stöðum á landsbyggðinni nú í sumar. Myndirnar verða í Ólafsvík til 24. þessa mánaðar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar