Frjálsíþróttamót Gogga galvaska

Þorkell Þorkelsson

Frjálsíþróttamót Gogga galvaska

Kaupa Í körfu

Goggi galvaski hélt í 15. sinn stórhátíð ungra frjálsíþróttamanna á Varmárvelli í Mosfellsbæ um helgina. Það er eitt stærsta íþróttamót landsins fyrir 14 ára og yngri. Það var ekki einungis keppt í frjálsum íþróttum, heldur líka farið í skrúðgöngu, ratleik, föndrað, trjám plantað og síðan var haldið sundlaugarpartí og diskótek. Goggi vill vekja áhuga á frjálsum íþróttum og eru flestir keppendur að stíga sín fyrstu mikilvægu spor í frjálsum, keppa við og kynnast krökkum hvaðanæva af landinu. MYNDATEXTI:Hvað verður þetta tré orðið stórt á næsta stórmóti?

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar