KR - ÍA 0-2

Sverrir Vilhelmsson

KR - ÍA 0-2

Kaupa Í körfu

TÍU ára bið Skagamanna eftir sigri á KR-vellinum lauk í gærkvöldi þegar lokaleikur níundu umferðar Landsbankadeildar karla fór fram. Töluvert meiri barátta og hungur var í leikmönnum ÍA sem dugði þeim til 2:0 sigurs á máttlausum KR-ingum sem áttu á köflum í miklu basli með fríska Skagamenn. Fyrir vikið höfðu liðin sætaskipti og situr ÍA nú í fimmta sæti deildarinnar með þrettán stig en Vesturbæingar eru í sætinu fyrir neðan með tíu stig. MYNDATEXTI: Markaskorarar Skagamanna, Igor Pesic og Hafþór Vilhjálmsson, fagna marki þess síðarnefnda á KR-vellinum í gærkvöld.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar