Blái herinn umhverfisverðlaun

Helgi Bjarnason

Blái herinn umhverfisverðlaun

Kaupa Í körfu

Keflavík | Tómas J. Knútsson, hershöfðingi umhverfissamtakanna Bláa hersins í Keflavík, segist tilbúinn að eyða næstu tíu árum lífs síns í að hreinsa strendur alls landsins og skorar á þá sem stutt hafa hann í hreinsun hafna og stranda á Suðurnesjum að styðja sig í þessu verkefni. Blái herinn fékk í gær afhent umhverfisverðlaun Ungmennafélags Íslands og Pokasjóðs fyrir brautryðjendastarf við hreinsun hafna. Sigríður Anna Þórðardóttir afhjúpaði af því tilefni skjöld sem komið hefur verið upp við smábátahöfnina í Grófinni í Keflavík. MYNDATEXTI: Umhverfisverðlaun afhent Bjarni Finnsson, formaður Pokasjóðs, Björn B. Jónsson, formaður UMFÍ, Tómas J. Knútsson og Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra eftir afhjúpun skjaldarins í Grófinni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar