Leikarar í fótbolta

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Leikarar í fótbolta

Kaupa Í körfu

Leikhópurinn Vesturport er tíður gestur á grasbletti fyrir utan Morgunblaðshúsið á sumrin. Óljóst er hvort knattspyrnan sé hluti af upphitun leikaranna sem nú æfa í Borgarleikhúsinu eða hvort sparkið er notað til að brjóta upp leikæfingarnar en leikgleðin er svo sannarlega til staðar. Sjaldgæfari gestur er þó Spánverji einn að nafni Gael García Bernal sem er rísandi stjarna í leiklistarheiminum. Stutt er síðan að hann og Björn Hlynur Haraldsson léku saman í Blood Wedding í London en þá varð þeim vel til vina. Samkvæmt Birni Hlyni er Gael García í stuttu fríi og notaði það eins og sjá má af myndunum til að heimsækja Ísland - og spila fótbolta. MYNDATEXTI: Gael García fylgist spenntur með knatttækni Nínu Daggar Filippusdóttur.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar