Snoop Dogg

Árni Torfason

Snoop Dogg

Kaupa Í körfu

RAPPARINN Snoop Dogg lét bíða eftir sér í Egilshöll í gær en á meðan biðu hundruð aðdáenda hans full eftirvæntingar í salnum. Tónleikarnir hófust um klukkustund síðar en áætlað hafði verið en biðin var eflaust þess virði því að sögn Höskuldar Ólafssonar, blaðamanns Morgunblaðsins, var stemningin mjög góð þegar kappinn lét loks sjá sig. Hann náði áhorfendum á sitt band og spurði þá hvort þeir elskuðu hann, sem flestir virtust gera, ef marka má viðbrögðin sem rapparinn fékk við spurningu sinni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar