Maggi Eiríks og KK

Eyþór Árnason

Maggi Eiríks og KK

Kaupa Í körfu

FJÖLMARGIR lögðu leið sína í garð verslunarinnar 12 tóna á Skólavörðustíg á föstudaginn til þess að hlýða á hina landskunnu tónlistarmenn KK og Magnús Eiríksson, en þeir gáfu nýlega út plötuna Fleiri ferðalög sem situr á toppi Íslenska tónlistans um þessar mundir. Veðrið lék við tónleikagesti, sem skemmtu sér hið besta, enda runnu lögin ljúflega niður í bland við gómsætan grillmat sem kaupmenn í nágrenninu buðu upp á. MYNDATEXTI: Tónleikagestir undu sér vel í blíðviðrinu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar