Buslað í Grasagarðinum

Árni Torfason

Buslað í Grasagarðinum

Kaupa Í körfu

GRASAGARÐURINN í Laugardal laðar til sín ómældan fjölda gesta þegar vel viðrar og jafnvel hina dagana líka. Þegar hitnar getur verið gott að fríska sig aðeins í kristaltæru vatni sem tekur á sig hinar fjölbreyttustu myndir þegar það fossar um laglega mótuð listaverk í garðinum. Smábusl ætti ekki að saka um hásumar og kannski fólk hugsi til Evrópubúa sem sumir hverjir láta sig vaða ofan í virðulega og mörg hundruð ára gamla gosbrunna á torgum stórborganna þegar hitinn ætlar að keyra úr hófi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar