Unnar Freyr og Erpur

Árni Torfason

Unnar Freyr og Erpur

Kaupa Í körfu

Tónleikar Snoop Dogg voru vel sóttir á sunnudagskvöldið en þá lögðu á sjötta þúsund manns leið sína upp í Egilshöll til að hlýða á rapphundinn messa yfir aðdáendum sínum. Ungt fólk var að sjálfsögðu í miklum meirihluta og virtist þorri tónleikagesta skemmta sér konunglega. Íslensku hljómsveitirnar Forgotten Lores, Hjálmar og Hæsta hendin hituðu upp og stóðu þær sig allar með prýði þó að hljómurinn hafi verið í lakara lagi eins og fram kemur í tónleikadómi Höskuldar Ólafssonar í blaðinu í dag. MYNDATEXTI: Unnar Freyr og Erpur í Hæstu hendinni röppuðu af miklum þrótti.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar