Ljósmyndasýning Kringlunni

Jim Smart

Ljósmyndasýning Kringlunni

Kaupa Í körfu

ÚRVAL ljósmynda eftir ljósmyndara Morgunblaðsins má nú finna á sýningu í Kringlunni, nánar tiltekið á annarri hæð við verslunina NEXT. Sýningin er sett upp árlega samhliða World Press Photo-sýningunni, sem er sýning á bestu fréttaljósmyndum heimsins frá árinu áður. Morgunblaðið er einn aðalstyrktaraðila þeirrar sýningar á Íslandi. Að þessu sinni samanstendur sýning Morgunblaðsins af úrvali fréttaljósmynda frá árinu 2004 undir yfirskriftinni "Maðurinn, náttúran og krafturinn". Sýningin stendur til 24. júlí.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar